Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 50/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 50/2020

Fimmtudaginn 30. apríl 2020

A

gegn

Hafnarfjarðarbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. janúar 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Hafnarfjarðarbæjar frá 17. janúar 2020 á umsókn hennar um afturvirka fjárhagsaðstoð.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 30. desember 2019, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð frá Hafnarfjarðarbæ og var samþykkt að greiða henni fjárhagsaðstoð í janúar 2020. Kærandi óskaði eftir greiðslu fjárhagsaðstoðar fyrir desember 2019 þar sem hún hafi fullnýtt bótarétt sinn hjá Vinnumálastofnun. Beiðni kæranda var synjað með vísan til 7. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar sem tók áfrýjun kæranda fyrir á fundi þann 17. janúar 2020 og staðfesti synjunina. 

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 28. janúar 2020. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Hafnarfjarðarbæjar vegna kærunnar. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. febrúar 2020. Greinargerð Hafnarfjarðarbæjar barst með bréfi, dags. 9. mars 2020, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. mars 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún sé ekki sátt við synjun Hafnarfjarðarbæjar um afturvirka fjárhagsaðstoð. Í 7. gr. reglna sveitarfélagsins komi hvergi fram einhver ákveðin dagsetning til að sækja um afturvirka fjárhagsaðstoð og því skilji kærandi ekki synjunina.

III. Sjónarmið Hafnarfjarðarbæjar

Í greinargerð Hafnarfjarðarbæjar er greint frá því að kærandi hafi verið atvinnulaus í nokkra mánuði og fengið atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun. Bótaréttur kæranda hafi verið uppurinn í desember 2019 og í þeim mánuði hafi hún aðeins fengið greiddar 12.089 kr. í atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ þann 30. desember 2019 og því fengið greidda fjárhagsaðstoð fyrir janúarmánuð en hjá sveitarfélaginu sé fjárhagsaðstoð greidd frá umsóknardegi. Kærandi hafi talið að hún ætti bótarétt fram í maí 2020 og því hefði hún ekki sótt um fyrr og óskað eftir fjárhagsaðstoð aftur í tímann, þ.e. fyrir allan desembermánuð. Umsókn kæranda hafi verið lögð fyrir afgreiðslufund ráðgjafarteymis barna- og fjölskyldusviðs þann 14. janúar 2020 þar sem svohljóðandi bókun hafi verið samþykkt:

„Beiðni umsækjanda um afturvirka fjárhagsaðstoð er synjað með vísan til 7. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ þar sem umsókn var ekki lögð fram fyrr en 30. desember 2019 og umsækjandi hefur ekki sýnt fram á að fjárhagsaðstoð hafi verið honum nauðsynleg á þeim tíma sem umsókn tekur til.“

Kærandi hafi skotið ákvörðun teymisins til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar sem hafi staðfest niðurstöðuna með eftirfarandi bókun:

„Fjölskylduráð Hafnarfjarðar staðfestir niðurstöðu afgreiðslufundar ráðgjafarteymis fjölskyldu- og barnamálasviðs um að synja beiðni umsækjanda um afturvirka fjárhagsaðstoð með vísan til 7. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ þar sem umsókn var ekki lögð fram fyrr en 30. desember 2019 og umsækjandi hefur ekki sýnt fram á að fjárhagsaðstoð hafi verið honum nauðsynleg á þeim tíma sem umsókn tekur til.“

Við ákvörðun á umsókn kæranda hafi verið litið til þess að fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ sé greidd frá umsóknardegi, auk þess sem upplýsingar komi fram á greiðsluseðlum Vinnumálastofnunar um það hvenær bótarétti ljúki. Af þeim sökum hafi umsókn hennar um fjárhagsaðstoð fyrir desembermánuð verið synjað.

IV. Niðurstaða

Kærð er synjun Hafnarfjarðarbæjar á umsókn kæranda um afturvirka fjárhagsaðstoð.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 3. mgr. 21. gr. laga nr. 40/1991 kemur fram að aldrei sé skylt að veita fjárhagsaðstoð lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram. Í 7. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ er samhljóða ákvæði, auk þess sem þar er einnig gert að skilyrði að rökstuddar ástæður verði að réttlæta aðstoð aftur í tímann og verði skilyrðum fjárhagsaðstoðar að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.

Kærandi lagði fram umsókn um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ 30. desember 2019, sama dag og hún fékk greiðsluseðil frá Vinnumálastofnun vegna desembermánaðar. Á þeim greiðsluseðli kom fram að bótatímabili kæranda væri lokið og fékk hún greiddar 12.089 kr. í atvinnuleysisbætur fyrir desembermánuð.   

Af hálfu Hafnarfjarðarbæjar hefur komið fram að ekki hafi verið rökstuddar ástæður fyrir því að veita kæranda fjárhagsaðstoð í desember 2019 þar sem á greiðsluseðlum Vinnumálastofnunar komi fram upplýsingar um hvenær bótarétti ljúki. Í beiðni kæranda um afturvirka fjárhagsaðstoð vísaði kærandi til þess að hún hafi talið að hún ætti bótarétt hjá Vinnumálastofnun fram í maí 2020. Vegna þessa hafi hún ekki sótt um fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélaginu fyrr.

Að mati úrskurðarnefndar hefur kærandi komið fram með rökstuddar ástæður fyrir því að hafa ekki sótt um fjárhagsaðstoð fyrr en hún gerði. Ekki varð um neina töf að ræða hjá kæranda, enda brást hún strax við þegar henni varð ljóst að ekki yrði um frekari greiðslur að ræða frá Vinnumálastofnun og sótti um fjárhagsaðstoð. Að þessu virtu bar sveitarfélaginu að verða við umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir desember 2019, að uppfylltum öðrum skilyrðum reglna Hafnarfjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð. Ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar er því felld úr gildi og málinu vísað til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar.

 

  

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar frá 17. janúar 2020 um synjun á umsókn A, um afturvirka fjárhagsaðstoð er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

_Kári Gunndórsson

 

 

 

                                                                    

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum